OK...
Við viðurkennum fúslega að við erum að sökka í þessu blogg dæmi, og erum nú að komast að því að það er ekkert sniðugt að draga þetta svo lengi því það er alveg haugur sem hægt er að segja frá ;) því verður stiklað á stóru hér....hummhumm.Allavega erum við búin að fara í Port Aventura, sem er stór skemmtigarður sem er hér fyrir utan. Vorum reyndar frekar óheppin með veður, og vegna vinds var ekki opnað í risa rússíbanann sem mig (sgh) langaði mest í, en það var kannski bara sem betur fer því Árni greyið var orðinn grænn eftir aðeins of marga snúninga í bollunum..hehehe engu að síður var sá dagur mjög fínn og má við bæta að það á að opna nýtt tæki þar 2007 sem á að komast í 140km/h á 3,5sek.... það verður semsagt farið þangað aftur um leið og sú græja opnar!!!!!
Einnig hefur verið ágætis straumur af heimsóknum hingað undanfarið, þökk sé Heimsferðum. Höfum við getað nýtt það ágætlega og fyllt töskur af flatkökum&hangiketi og hinni heittelskuðu íslensku kókómjólk!!ummmmmmmmmmmmmm Mamma og Amma (sgh) komu í heimsókn í 3 daga og gengu ársskammtinn (rétt eins og allir hinir) upp á fjall (Tibidabu) og um allar verslunargöturnar, kom reyndar soldið fyrir að Árni og Amma kæmu sér vel fyrir á næsta bar og létu mig og Mömmu um að þræða búðirnar....... wonder why? Var samt alveg æðislegt að fá kellurnar í heimsókn, fékk samt smá heimþrá, en þar sem við erum búin að ákveða að fara heim um jólin þá var hún fljót að hverfa :)Annars er skólinn byrjaður á fullu, þar sem við erum svo mörg að byrja á fyrsta ári eru 2 interior bekkir kenndir á ensku, einnig eru 2 bekkir kenndir á spænsku. Í dag voru allir 4 bekkirnir að vinna saman að verkefni 80 manns, var okkur skipt í hópa og áttum við að byggja kassa/kubb 2x2m. og áttum við að vinna með andstæður...... Í mínum hóp voru: Pil (Frakkl) David (Spánn) Ana (Catal) Ayden (Iran) Ewa (Svíþj) Marilen (Filippsey) og svo Ísland... smá blanda... ;) Þarf ekki að taka fram að það voru margar mismunandi skoðanir og vinnuaðferðir þar í gangi, en þetta var alveg meiriháttar gaman, bæði að kynnast nýju fólki (var sú eina úr bekknum mínum) og að sjá mismuninn á milli þjóða.. Í ensku bekkjunum er góð blanda af mismunandi þjóðernum, í mínum bekk eru einstaklingar frá Afríku, Ísrael, Svíðþjóð, Noregi, Kanada, Líbanon ofl.ofl Frekar skemmtilegt... og fínir krakkar, sama má segja um kennarana, jafnmikil þjóðernisblanda og einstaklega hressir, maður verður orðinn rosalega International þegar búin hér!!!! hehehe Meira seinna..... vonandi ekki mikið seinna ;)
Adios
Sigrún & Árni


